Jarlsstaðarvalkyrjur
19.11.2007 15:44:10 / Vef-Jarlínan

Sjaldan en þó....

 

Sælar frænkur!:haha:

 

Takk fyrir síðast þarna hjá henni Stínu Jónudóttur þann 13. nóv.

Sem og alltaf þá var bara gaman að hitta á ykkur. 

 

Ekki má gleyma æðislegum laugardegi þarna 10. nóv þegar við komum saman og það var hamast á íslenskri og norskri ull!!  Já svo úr urðu flottar töskur!!  Takk æðislega Kristín fyrir að kenna okkur, vonum svo sannarlega að þú náir að jafna þig fljótlega á æsingnum í okkur!! :$  Mér fannst þetta rosa gaman og viss um að ég reyni aftur síðar við hamaganginn!! :lol:

 

Desemberhittingurinn verður þann 11. des heima hjá henni Löllu Siggudóttur.

Þá er stefnan að taka í laufabrauðsskurð og láta listræna hæfileika okkar njóta sín...já og kannski verður sötrað á 1-2 sopum af jólaglöggi!!  Allar að koma með kökur, bretti og hnífa.  Lalla og gengi sjá um feiti og pott!!

 

Hafið það sem allra best í skammdeginu, já skellið bara upp seríu núna!!!

 

Sjáumst frænkuhressar!

Sandra

 

Ps. ...og muna að kvitta þegar kíkt!!:$

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 09:46:41 / Vef-Jarlínan

Næsti hittingur á morgun!! :)

 

Sælar frænkur!

Tíminn líður hratt en það er ekkert slæmt því þá virðist svo stutt á milli hittinga!! :)

Minni á næsta hitting heima hjá henni Siggu okkar:

- þriðjudaginn 9. okt
- mæting 20:00/20:30

Sjáumst hressar og kátar!
Mánudagssólskinskveðjur!
Sandra

Ps. sérlegar þakkir fyrir kveðjurnar á síðunni!
Já og hlökkum til að sjá fleiri sjaldséðar frænkur á hittingunum!!!

Ps.ps. eru þið búnar að kíkja á http://www4.mmedia.is/anno/ 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 10:53:16 / Vef-Jarlínan

Loksins skrifar hún eitthvað...

 

Blessaðar frænkur!

 

Mér þótti nú við hæfi að rita eitthvað smá hérna, þó svo ekki nema halló og bless! J

 

En jæja, þar sem ég er farin að rita eitthvað þá læt ég fylgja með að sem og fyrr þá var gaman á frækuhittingi.  Sá fyrsti var semsagt haldin í gær og koma þar sjaldséð frænka að norðan og var það bara gaman, hlökkum til að sjá hana aftur og fleiri til þegar tækifærin gefast!! J

 

Spjallað um heima og geyma, Jarlsstaða-syndrom og svo var auðvitað kosið í nýja stjórn.

Það er við hæfi að minnast aðeins á þá stjórn hérna, stjórn sem ætlar sér að vera afar dugleg að dreifa valdinu, setja á nefndir um hin ýmsu mál! J

 

Forkvinna: Kristín Þorgríms

Varaforkvinna: Sandra Jónu

Gjaldkeri: Bylgja Siggu

Ritari: Lalla Siggu

 

Næsti fundur verður annan þriðjudag í október, þeas 9. okt í heima hjá henni Siggu – en nánar um það síðar!!

 

Svo í lokin langar mig að minna fólk á að senda mér upplýsingar um heimasíður ættingja til að bæta við hér vinstra meginn!!

 

Sjáumst hressar og kátar!

Baráttukveðjur!

Sandra

Ps. og ekki gleyma að kvitta ef kíkt hér við! :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 22:28:50 / Vef-Jarlínan

Gleðilega hátíð!!


Blessaðar frænkur!!

Desember hittingurinn fór vel fram sem og aðrir hittingar! Það var slúðrað og smá sötrað á jólaglöggi en minna var um föndur...hipp hipp húrra fyrir Kristínu sem hélt uppi föndur þema kveldsins!! :haha:

Fyrsti hittingur næsta árs er þriðjudaginn 9. janúar!
Hvar, hvenær og hvernig kemur í ljós síðar.... ;)

Svo vona ég að þið hafið öll haft það gott yfir jólin og vona að áramótin verði skrautleg og skemmtileg!! Hlakka til að heyra allt um áramótaheitin!! ;) Þakka líka fyrir skemmtilega hittinga á árinu sem er að líða og viss um að þeir verða jafn ef ekki meira skemmtilegir á komandi ári!!

Sjáumst frænkuhressar á næst ári! 8)
Sandra


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 15:22:12 / Vef-Jarlínan

....og bráðum kemur blessaða jólaglöggið okkar!!


Sælar frænkur!!8)

Takk fyrir síðast!! Sem og venjulega var nú gaman að hitta ykkur!! 8)

Hún Lalla kom með myndir af N.Y. maraþongöngunni sinni og sagði okkur frá ævintýrinu þeirra.  Áfram stelpur, við Valkyrjur tökum þátt í svona Avon maraþoni hér á Íslandi ef þær stöllur skipuleggja...er það ekki annars??8|8|

Eftir sögustundina var skipst á frásögnum af ævintýrum frá N.Y. þar sem óvenjulega margar Valkyrjur hafa verið þar þetta árið.  Fleiri ferðasögur og ferðaplön fuku líka og er af nógu að taka þar...þessar Valkyrjur virðast ekki geta setið rólegar heima hjá sér!! :lol::lol::lol:

Næsti hittingur verður þriðjudaginn 12. des heima hjá henni Hrönn.  Jólaglögg og föndur verður þema kvöldsins og koma Valkyrjur sjálfar með glögg og föndur að eigin skapi - þær sem vilja bara kjafta komi með góðar kjaftasögur - auðvitað:).

Frést hefur af Frónsferð frænka sem búsettar erlendis, akkúrat á þessum tíma og skorum við á þær að kíkja á okkur!!!

Þar til næst, hafið það sem allra best og ekkert stress í jólaundirbúningin!!!
Jólin-eru-að-koma kveðjur!
Sandra Valkyrja


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 22:01:00 / Vef-Jarlínan

Og svo...


Blessaðar frænkur! 8)

Undirrituð verður að viðurkenna að hún lét ekki sjá sig á síðasta fundi og er það stórt ÚBS:S  En sagnir af þeim fundi eru góðar og voru þær afar afkastamiklar, þær frænkur sem mættu þar sem vetrarhittingar voru allir ákveðnir.

Ég ætla aðeins að minna á þann næsta sem er þriðjudaginn 14. nóv og verður haldin heima hjá henni Bylgju. Hún Lalla mun þá segja okkur og sýna myndir frá New York maraþongönguævintýrinu sem hún fór í núna nýverið. Semsagt takið kveldið frá eins og venjulega og svo látum við áminningarboð ganga síðar.

Svo langar mig að biðja alla frænkur sem kíkja hér að kvitta, þó svo ekki nema með lítilli "kommu" ( , ) bara svona fyrir forvitni mína...8|

Allra bestu Valkyrjukveðjur! :!:
Sandra

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 11:27:36 / Vef-Jarlínan

GAMAN GAMAN nú komum við aftur saman.....


Sælar enn á ný!!:lol:

Þá er komið að næsta nornafundi!!:haha:

Dags:    þriðjudaginn 10. okt
Kl:        20:00/20:30
Staður:  heima hjá henni Stínu

Hlakka til að hitta ykkur allar!!

Bestu frænkukveðjur!
Sandra8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 22:51:43 / Vef-Jarlínan

Afsakið hlé...

Blessaðar frænkur!!

Þetta er bara agalegt, ein kosin ritari á fyrsta fundi vetrarins og rita ekki niður fundinn og þar að auki ekkert skrifað um fundinn fyrr en seint og síðar meir! Hvað er málið!! :):) Jæja ég tel mig hafa smá afsökun - bleyjur og brjóstagjöf!! har har

Semsagt þann 12. sept tók hún Elfa okkar á móti 12 hressum frænkum  + 1 splúnkunýjum frændi (...á undanþágu!!:haha:)) og var farið yfir hvað skyldi gert á hittingum vetrarins. Margar góðar og spennandi hugmyndir komu upp og auðvelt að láta sér hlakka til þeirra!! Já og samþykkt að vera aftur með mini-ættarmót og fá alla - konur og kalla með börn og skalla - til að mæta!!

Kosið var í nýja stjórn Varlkyrja og niðurstaðan var eftirfarandi:
- Forkvinna = Stína
- Varaforkvinna = Bylgja
- Ritari = Sandra (Kristín Þ. sérlegur ritari á fyrsta fundi - takk takk!!)
- Gjaldkeri = Hrönn

Ákveðin voru frænkugjöldi, svona til að eiga eitthvað í buddunni þegar skemmtilegir hlutir framkvæmdir og var ákveðið 500,- á mánuði.

Sagt var ma frá því að Stína og Kristín rákust á frænkur okkar Sigtryggsdætur síðasta sumar og höfðu þær jú haft hugan við okkur og vonum við að næst þegar þær eiga ferð í höfuðborgina að þær láti vita af sér svo við getum kallað til auka-frænkuhittings. Allar afsakanir til þessa vel þegnar!! thí hí

Næsti hittingur er sem og venjulega annan þriðjudag mánaðarins, þeas 10. okt!!
Hún Stína forkvinna kallar á hitting og hvar nema á þeim fræga stað, Dúfnahólum 10...næstum því;)  Nánari upplýsingar síðar!!!

Já látið ykkur fara að hlakka til og sjáumst von bráðar hressar og kátar!
Sandra Valkyrja


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 18:06:58 / Vef-Jarlínan

Búnar í bili..........


Sælt veri fólkið!!!:haha:

Það tók smá tíma að setjast hérna niður og skrifa síðasta pistil vetrarins - efast ekki um að fræknur hafa beðið rosa spenntar eftir honum!! thí hí hí

Síðasti frænku/nornahittingur fór vel fram og var mikið gaman sem og alltaf. Fín mæting í sveitina til hennar Jónu, og takk takk fyrir síðast!! Sem og fyrr var ýmislegt rætt og spekúlerað í ýmsu kúnstugu og venjulegu. Skemmtilegar sögur gengu frænka á milli og alltaf lærir maður eitthvað nýtt um fólk og frænkur!! Þetta er bara gekt gaman, eins og unglingarnir myndu segja!!

Hittingurinn tók á sig alvöru-fundar-form þar sem forkvinnan tók hátíðlega til máls og fór að spekúlera með frænkum í því hvort við þyrftum ekki að hafa meiri tilgang með öllum fundum, vera ákveðnari í því að hafa þema fyrir hvern hitting. Allar vorum við sammála forkvinnunni og imprað var á nokkrum hugmyndum sem teknar verða fyrir á fyrsta fundi næsta vetrar (þriðjudaginn 12. sept, ef dagatalið mitt er rétt!! :) ). Og svo má endilega fá hugmyndir yfir sumarið, þennan bjarta gleðitíma - muna bara að punkta þær niður, svo þær gleymast ekki þegar skammdegið fer að hellast yfir okkur....aftur!:)

Enn og aftur, takk takk takk takk fyrir góða hittinga á þessum vetri, ég (og ég hef trú á því að þið líka??) hafði mikið gaman af þessu og finnst alveg frábært að fá að kynnast ykkur á þessum fundum, sjá hversu brilliant konur finnast í ættinni!!!....svona eins og ég!! Har har har har har har har

Jæja, megi sumarið verða ykkur gott og gleðilegt - þetta verður sko minnistætt sumar fyrir mig!! ;) Sjáumst svo hressar, kátar og með fullt af skemmtilegum hugmyndum í byrjun næsta vetrar!!

Sumarið lengi lifi!!
Bestu frænkukveðjur! 8)
Sandra - Valkyrja!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 18:29:38 / Vef-Jarlínan

Þá er komið að því...


Sælar frænkur!!8)

Nú er komið að því - tvíhöfða lóa hefur sést á Selfossi og er hugmyndin að fara að skoða hana næstkomandi þriðjudagskveld.  Slá tvær flugur (lóur) í einu höggi, þeas skella sér í sveitaferð og hittast í síðasta skipti þennan veturinn!!!

Er ykkur annars ekki búið að hlakka til??

Jæja, best er að sjá þessa tvíhöfða lóu hjá henni Jónu á Selfossi svo stefnt á að mæta þar, þriðjudaginn 9. maí uppúr 20:00!!:!:

Hver og hver vill fara á bíl???8|

Hlökkum til að sjá ykkur!!
Sandra Valkyrja

Ps. minni á að Hellisheiðin er malbikuð
svo alveg alveg óhætt að rúlla þetta!!:haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 14:37:01 / Vef-Jarlínan

Seint en þó...


Sælar!!

Og takk fyrir síðast!!  Vonandi voru Páskarnir vænir hjá ykkur!!

Afgangarnir hjá Hrönn á síðasta hittingi voru tættir í sig, það var eins og frænkur hefðu bara ekki etið neitt marga marga daga áður!!  :o...nei ég segi bara svona!!  Þetta voru góðar kræsingar og takk fyrir okkur!!!

Umræðuefnin fjölbreytt sem fyrr og margar skemmtilegar reynslusögur - fortíðar og nútímasögur!!  Alltaf gaman að sjá hvað frænkur eru tilbúnar til að skoða og prufa!! :haha: :haha::haha:
Ég hef kannski misst af einhverju spennó þar sem ég fór fyrst af svæðinu?...treysti þá ykkur til að koma því á framfæri hér!! ;)

Svo er það loka hittingur vetrarins (8| veturinn að verða búin?) og þá verður haldið á Selfoss, þriðjudaginn 9. maí!!!!  Takið kveldið frá og látið ykkur hlakka til nánari upplýsingar þegar nær dregur!!!

FrænkuVorKveðjur!
Sandra

Ps. lóan er komin, þá er sko
óhætt að halda yfir Heiðina!!8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 09:34:18 / Vef-Jarlínan

Smá breyting á frænkuhitting....


Blessaðar!:lol:

Við ætlum að leyfa okkur að færa næsta frænkuhitting fram um einn dag, þeas halda hann 10. apríl og vonum að það komi ekki að sök.  Hún Hrönn bíður okkur heim í hús (hugsanlega fermingarafgangar frá deginum áður! ;) )

Semsagt, svona skal skrá í bókina:

Hvar:         Heima hjá Hrönn (sjá tölvupóst sendan á allar)
Hvenær:    10. apríl
Kl hvað.:   20:00/20:30

Hlakka til að sjá ykkur!!:haha:

Bestu Valkyrjukveðjur!
Sandra


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 14:42:36 / Vef-Jarlínan

Grýtubakkagleðinni lokið..


Sælar enn á ný!!

Takk fyrir síðast!! 8)

Sem og fyrr var nú gaman að hitta ykkur, spjalla og spekúlera og heyra sögur og sagnir.  Ýmislegt sem kemur í ljós þegar "nornir" koma saman!! :haha:

Næsti frænkuhittingur er auðvitað fyrsta þriðjudag í apríl mánuði, þeas þann 11. apríl.
Nánar um stund og stað þegar nær dregur - verið bara viðbúnar!!

Þar til þá hafið það sem allra best!!:haha:
Sjáumst!
Sandra Valkyrja

Ps. svo er það síðasti hittingur vetrarins,
þann 9. maí og líklega á Selfossi!!!!!!! :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 11:42:15 / Vef-Jarlínan

Næsti frænkuhittingur...


Blessaðar frænkur!!8)

Nú er koma að honum - næsti frænkuhittingur!!!!
Spenntar?....og hér koma nauðsynlegar upplýsingar:

Dags:   þriðjudaginn 14. mars
Hvar:   heima hjá Siggu forkvinnu
Mæta:  á milli 20:00-20:30

Tölvupóstur hefur verið sendur út á netfangalistann fína!!
Sem og fyrr þá endilega segja öllum frænkum frá sem ekki nettengdar!!

Sjáumst hressar og kátar!:D

Valkyrjukveðjur!
Sandra

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 13:00:36 / Vef-Jarlínan

Mikið hlegið og skemmt sér...


Sæl verið þið!!

Bíókveldið hjá Erlu heppnaðist vel og var mjög gaman að skoða þessar gömlu videómyndir - fólk hefur elst og breyst, kíló bæst við og fokið líka!! :D:D:D  Sönghæfileiki ættarinnar kom í ljós, bæði í jólaglöggi í Árbænum desember 1989 ;) og á ættarmótinu á Jarlsstöðum 1995.  Þetta fer að verða spurning um SingStar frænkukveld??:S

Þær sem ekki komust í gærkveldi, geta huggað sig við  það að það leynast fleiri slíkar antík vídeómyndir hjá ættingjum svo annað bíókveld verður líklega sett á við gott tækifæri!!8|

Næsti frænkuhittingur verður hjá henni Siggu forkvinnu JarlsstaðaValkyrja, þriðjudaginn 14. mars!!  Nánar um það síðar, en þið getið amk byrjað að láta ykkur hlakka til!!

Farið vel með ykkur og bestu frænkukveðjur!
Sandra Valkyrja


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Næsti frænkuhittingur!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1550 dögum